Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Mohamed Salah sé alls enginn Cristiano Ronaldo ennþá.
Ronaldo og Salah mætast í úrslitum Meistaradeildarinnar og eru báðir líklegir til að vinna Ballon d’Or verðlaunin.
Hamann er hrifinn af báðum leikmönnum en efast þó ekki um hvern hann myndi velja í sitt lið.
,,Allt sem Salah snertir endar sem marg en í leik eins og þessum verður maður að velja Ronaldo því hann hefur gert þetta margoft áður,“ sagði Hamann.
,,Salah hefur átt ótrúlegt tímabil. Framtíðin tilheyrir Salah þó en núna er tími Ronaldo, leikmanns sem hefur sannað sig í svona stöðu.“
,,Þetta er þó tækifæri fyrir Salah til að sanna sig í hæsta gæðaflokki. Það gerist ekki stærra ne úrslit Meistaradeildarinnar.“
,,Ef Liverpool vinnur þá held ég að Salah sé líklegastur til að vinna Ballond d’Or en ef þú spyrð mig hvor leikmanninn ég vildi hafa í mínu liði þá vel ég Ronaldo.“