Rivaldo, goðsögn brasilíska landsliðsins, telur að landi sinn, Neymar, hafi gert mistök með því að ganga í raðir Paris Saint-Germain.
PSG er lang sterkasta liðið í Frakklandi og telur Rivaldo að það hafi verið mistök að yfirgefa Barcelona fyrir frönsku meistarana.
,,PSG er með sterkt lið en þeir eru ekki sterkastir í Meistaradeildinni. Þeir eru ekki sterkastir í Evrópu,“ sagði Rivaldo.
,,Franska deildin er ekki eins og enska, þýska eða spænska heldur. Þess vegna tel ég að hann hafi gert mistök en fjárhagslega séð var þetta gott skref fyrir hann.“
,,Þú verður að vinna Meistaradeildina, afreka eitthvað annað. Eða að vinna Ballon d’Or. Liðið hans mun alltaf vinna deildina og bikarinn.“