Það verður að teljast ansi líklegt að Willian, leikmaður Chelsea, sé á förum frá félaginu í sumar.
Willian hefur ekki verið í byrjunarliði Chelsea undanfarið samband hans og Antonio Conte er sagt mjög slæmt.
Willian stóð sig með prýði á köflum á leiktíðinni og var til að mynda valinn leikmaður ársins hjá bláliðum.
Brasilíumaðurinn var á bekknum hjá Chelsea í gær er liðið vann 1-0 sigur á Manchester United í úrslitum bikarsins.
Willian birti svo mynd af öllu liði Chelsea með bikarinn en faldi andlit Conte á myndinni sem gefur mikið í skyn.
Myndina má sjá hér.