Steven Gerrard vill fá vængmanninn unga Harry Wilson til liðs við sig hjá Rangers fyrir næstu leiktíð.
Frá þessu er greint í dag en Wilson er samningsbundinn Liverpool þar sem Gerrard þekkir vel til.
Wilson er 21 árs gamall og á að baki þrjá landsleiki fyrir Wales. Hann hefur enn ekki spilað deildarleik fyrir Liverpool.
Wilson spilaði með Hull City á láni á leiktíðinni sem var að ljúka og skoraði sjö mörk í 13 leikjum.
Gerrard hefur nú þegar fengið þrjá leikmenn til Rangers og ætlar að styrkja hópinn enn frekar.