Umboðsmaður Jack Wilshere hefur sett sig í samband við franska stórliði Paris Saint-Germain.
L’Equipe í Frakklandi greinir frá þessu í dag en Wilshere hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning á Emirates.
Þessi 26 ára gamli leikmaður verður samningslaus í sumar og er óvíst hvort hann framlengi við Arsenal.
Umboðsmaður Wilshere hefur boðið PSG að fá miðjumanninn í sumar en Wolves og Everton hafa einnig áhuga.
Wilshere er með samningstilboð á borðinu frá Arsenal sem myndi tryggja framtíð hans hjá félaginu næstu þrjú árin.