Suso, leikmaður AC Milan, hefur áhuga á því að spila aftur fyrir Liverpool einn daginn en hann á að baki 21 leik fyrir aðallið félagsins.
Suso kom til Anfield aðeins 16 ára gamall frá Cadiz á Spáni en var svo seldur til Milan fyrir eina milljón punda árið 2014.
,,Ég varð að manni áður en ég varð fótboltamaður. Þetta var mjög erfitt, þessi lífstíll og tungumálið,“ sagði Suso.
,,Ég man eftir öllu, ég spilaði ekki mikið en ég kynntist Steven Gerrard og var liðsfélagi leikmanna eins og Luis Suarez, Philippe Coutinho og Jamie Carragher. Ég mun aldrei gleym a þessari reynslu.“
,,Enska úrvalsdeildin er öðruvísi, ég myndi kalla fótboltann þar sérstakan. Ég vil spila fyrir Liverpool aftur einn daginn. Ég ólst þar upp og þetta er stórt félag.“