Manuel Pellegrini hefur yfirgefið kínverska félagið Hebei China Fortune. Þetta var staðfest í dag.
Pellegrini hefur verið í Kína frá árinu 2016 en var fyrir það stjóri stórliðs Manchester City á Englandi.
Pellegrini hefur sterklega verið orðaður við West Ham og er útlit að hann sé á leið þangað.
Sílemaðurinn mun fá þriggja ára samning í London og stóra buddu til að kaupa leikmenn í sumarglugganum.
Hebei vann 2-1 sigur í kínversku deildinni í dag en eftir það var brottför Pellegrini staðfest.