Óvíst er hvort framherjinn Romelu Lukaku muni spila með Manchester United á Wembley í dag.
Lukaku hefur verið að glíma við meiðsli í ökkla og hefur misst af síðustu þremur leikjum United.
United mætir liði Chelsea á Wembley í dag en um er að ræða úrslitaleik enska bikarsins.
Jose Mourinho, stjóri United, staðfesti það í gær að hann myndi taka ákvörðun á síðustu stundu varðandi Lukaku.
Belginn hefur verið í heimalandinu í meðferð vegna meiðslanna en byrjaði að æfa með United aftur í þessari viku.