Mason Mount, ungur leikmaður Chelsea, mun æfa með HM hóp enska landsliðsins á næstu dögum.
Um er að ræða 19 ára gamlan strák sem spilaði frábærlega með liði Vitesse í Hollandi á þessari leiktíð.
Mount skoraði 14 mörk og lagði upp önnur 11 fyrir Vitesse á tímabilinu og hefur verið boðið að æfa með ensku stjörnunum.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, hrósaði Mount í viðtali á dögunum og er mikill aðdáandi leikmannsins.
Óvíst er hvort Mount eigi framtíð fyrir sér hjá Chelsea en liðið hefur ekki verið duglegt að nota unga leikmenn síðustu ár.