Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, er orðinn þreyttur á spurningum um brasilísku stjörnuna Neymar.
Neymar er sterklega orðaður við Real þessa dagana en hann er sagður ósáttur í herbúðum Paris Saint-Germain.
Real á tvo leiki eftir af tímabilinu, þar á meðal úrslitaleik Meistaradeildarinnar og vill Zidane ekki ræða Neymar að svo stöddu.
,,Ég ætla ekki að tala meira um leikmann sem er ekki í mínu liði,“ sagði Zidane á blaðamannafundi.
,,Það eru tíu dagar eftir og tveir leikir. Eftir það þá getum við talað um það sem þið viljið.“