Steve McClaren hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Queens Park Rangers á Englandi.
Þetta var staðfest í dag en McClaren hefur undanfarið ár starfað hjá ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv.
McClaren þekkir vel til Englands en hann stýrði síðast Derby County þar í landi eftir stutt stopp hjá Newcastle.
McClaren hefur þjálfað ófá lið á ferlinum og var einnig landsliðsþjálfari Englands í eitt ár á sínum tíma.
QPR hefur gengið illa í næst efstu deild síðustu ár og endaði í 16. sæti Championship-deildarinnar á leiktíðinni.