Eiður Smári Guðjohnsen lék með goðsögnum Chelsea á Stamford Bridge í dag í minningarleik um Ray Wilkins.
Eiður byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom inná snemma leiks fyrir Gianfranco Zola.
Eiður var mjög nálægt því að skora í leiknum en Sebastian Frey varði stórkostlega frá okkar manni.
Eiður og félagar þurftu að sætta sig við 4-1 tap á Stamford Bridge eftir að hafa komist í 1-0.
Frey gerði frábærlega til að verja frá Eiði sem átti fínt skot á markið en boltinn vildi ekki inn.
Atvikið má sjá hér.
It takes a world class save from Frey to deny Eidur Gudjohnsen an equaliser for the Blues! ? #LegendsReturn pic.twitter.com/WDE2Lzlrt3
— Chelsea FC (@ChelseaFC) 18 May 2018