Paul Lambert hefur ákveðið að yfirgefa lið Stoke City eftir fall liðsins úr efstu deild á Englandi.
Þetta var staðfest nú rétt í þessu en Lambert var fenginn til Stoke á tímabilinu til að bjarga því frá falli.
Eftir ágætis byrjun þá var gengi Stoke þó erfitt og hefur Lambert ákveðið að segja skilið við félagið.
Skotinn tók við Stoke eftir stutta dvöl hjá bæði Blackburn Rovers og Wolves. Fyrir það var hann í þrjú ár hjá Aston Villa.
Það verður fróðlegt að sjá hver tekur við en Chris Coleman er sagður líklegur til að skrifa undir á Britannia.