Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
———–
Chelsea býst við því að ráða Max Allegri í sumar eftir að hafa gefist upp í viðræðum við Luis Enrique. (Star)
Real Sociedad vill Rafa Benitez sem þjálfara. (Mirror)
Real Madrid ræðir það hvort félagið borgi 100 milljónir punda fyrir Eden Hazard í sumar. (Standard)
Gareth Barry fær nýjan samning hjá West Brom vegna fjölda spilaðra leikja í ár. (Telegraph)
Chelsea reynir að kaupa Berke Ozer 17 ára markvörð í næst efstu deild Tyrklands. (Sun)
Manchester City reynir að fá Roberto Navarro 15 ára leikmann Barcelona. (Sport)
West Ham vill halda David Moyes í starfi. (Mirror)
Bournemouth, Leicester og Aston Villa vilja fá Carhlie Austin ef Southampton fellur. (Mirror)