fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433

Þetta er stuðningsmaður Liverpool sem berst fyrir lífi sínu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tók á móti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í fyrrdag en leiknum lauk með 5-2 sigri heimamanna. Það var Mohamed Salah sem kom Liverpool yfir á 36. mínútu með stórglæsilegu marki og hann bætti svo við öðru marki sínu á 45. mínútu þegar hann slapp einn í gegn og kláraði laglega framhjá Allison í marki gestanna.

Sadio Mane kom Liverpool svo í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Roberto Firmino bætti við tveimur mörkum til viðbótar með stuttu millibili og staðan allt í einu orðin 5-0 fyrir Liverpool. Edin Dzeko minnkaði muninn fyrir Roma á 81. mínútu eftir slakan varnarleik Dejan Lovren og Diego Perotti bætti svo öðru marki við þegar hann skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnu á 85. mínútu.

Lokatölur því 5-2 fyrir Liverpool sem er í ágætis málum fyrir síðari leik liðanna sem fer fram í Róm eftir rúma viku en það voru ljót atvik sem áttu sér stað fyrir leik.

Stuðningsmenn Roma fóru þá að ráðast á stuðningsmenn Liverpool og hafa tveir verið handteknir í málinu. Þeir eru grunaðir um tilraun til manndráps en einn stuðningsmaður Liverpool hefur verið að berjast fyrir lífi sínu.

Maðurinn heitir Sean Cox og er 53 ára gamall. Stuðningsmenn og leikmenn Liverpool eru í áfalli eftir atvikið enda á enginn sem fer á fótboltaleik að þurfa að berjast fyrir lífi sínu.

Meira:
Sjáðu myndbandið – Tveir handteknir vegna tilraunar til manndráps

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“