Liverpool tók á móti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudaginn síðasta en leiknum lauk með 5-2 sigri heimamanna.
Liverpool komst í 5-0 í leiknum með tveimur mörkum frá þeim Mohamed Salah og Roberto Firmino og þá var Sadio Mane einnig á skotskónum.
Liðið er því í ansi þægilegum málum fyrir seinni leikinn sem fer fram í Róm á miðvikudaginn eftir tæplega viku.
Leikmenn Liverpool voru mættir á æfingu í dag í fyrsta sinn eftir sigurinn gegn Róma og það lá ansi vel á þeim eins og við var að búast.
Myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.