Bayern Munich tók á móti Real Madrid í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Joshua Kimmich kom Bayern yfir um miðjan fyrri hálfleikinn en Marcelo jafnaði metin fyrir Real Madrid undir lok hálfleiksins.
Það var svo Marco Asensio sem skoraði sigurmark leiksins á 57. mínútu og lokatölur því 2-1 fyrir Real Madrid.
Thomas Muller, fyrirliði Bayern Munich í leiknum var svekktur með tapið og fannst liðið eiga meira skilið.
„Við vorum alltof passívir og í raun bara hræddir,“ sagði Muller.
„Við fengum helling af færum til þess að skora í þessum leik.“
„Það var erfitt að fara inn í hálfleik í stöðunni 1-1 og svo skora þeir snemma sem gerða þetta ennþá erfiðara,“ sagði hann að lokum.