fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Spænskir fjölmiðlar hrósa Salah í hástert – Vilja fá hann í La Liga

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. apríl 2018 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool hefur verið magnaður síðan hann kom til félagsins frá Roma, síðasta sumar.

Hann var á skotskónum í gær þegar Liverpool vann 5-2 sigur á liði Roma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og þá lagði hann einnig upp tvö mörk í leiknum.

Salah er nú kominn með 43 mörk í 47 leikjum á þessari leiktíð sem er ótrúleg tölfræði en hann spilar sem kantmaður og því er afrekið ennþá stærra.

Spænskir fjölmiðlar hrósuðu leikmanninum í hástert í morgun og sögðu hann vera leikmanninn sem vantar í spænsku úrvalsdeildina.

Bæði AS og Marca gáfu honum hæstu einkunn fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Roma en Salah hefur verið orðaður við Real Madrid á þessari leiktíð.

Liverpool keypti hann af Roma fyrir rúmlega 36 milljónir punda, síðasta sumar en leikmaðurinn hefur hækkað talsvert í verði síðan þá.

Enska félagið hefur hins vegar engan áhuga á því að selja leikmanninn en Liverpool ætlar sér að berjast um sigur í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun