Daniele De Rossi fyrirliði Roma segir að Liverpool hafi spilað kraftafótbolta gegn liðinu í gær í Meistaradeildinni.
Liverpool vann 5-2 sigur á liðinu í fyrri leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Um var að ræða undanúrslit.
,,Ég hef ekki séð leikinn aftur og gæti haft rangt fyrir mér með taktík,“ sagði De Rossi.
,,Liverpool er sterkt lið og þeir gerðu vel en við vorum góðir í byrjun leiks.“
,,Liverpool fór alltaf í að sparka langt, það breytti engu hvar þeir voru á vellinum. Það var því erfitt að eiga við þá þegar þeir eru flestir sneggri en við.“
Liverpool í frábæri stöðu fyrir fyrri leikinn sem fram fer á Ítalíu í næstu viku.