Bayern Munich tekur á móti Real Madrid í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld klukkan 18:45 og eru byrjunarliðin klár.
Bæjarar unnu Sevilla nokkuð örugglega í 8-liða úrslitum keppninnar og þá sló Real Madrid ítalska liðið Juventus úr leik í svakalegri rimmu.
Þá tryggðu Bæjarar sér sigur í þýsku Bundesligunni á dögunum en Real Madrid er í þriðja sæti La Liga og því ljóst að það verður hart barist í kvöld.
Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.
Bayern Munich: Ulreich, Rafinha, Hummels, Boateng, Kimmich, Martinez, Rodriguez, Robben, Ribery, Muller, Lewandowski.
Real Madrid: Navas, Carvajal, Ramos, Varane, Marcelo, Casemiro, Modric, Kroos, Vazquez, Isco, Ronaldo.