Athletic Bilbao hefur mikinn áhuga á því að fá Ander Herrera, miðjumann Manchester United í sumar.
Samningur hans við Manchester United rennur út, næsta sumar en hann kom til félagsins frá Bilbao, sumarið 2014.
Miðlar á Spáni greina frá því í dag að spænska félagið ætli sér að bjóða honum betri samning en United er tilbúið að gera og lokka hann þannig aftur til Spánar.
Þeir eru tilbúnir að gera hann að einum launahæsta leikmanni liðsins en United keypti hann á sínum tíma fyrir 28 milljónir punda.
Herrera hefur komið við sögu í 34 leikjum með United á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp önnur tvö.