Peppi snýr aftur á vellina í sumar í Pepsi deild karla og kvenna. Frá þessu var greint í dag.
Peppi vakti mikla athygli þegar Pepsi deildin var að hefja göngu sína.
Hann hefur hins vegar verið í geymslu síðustu ár en hefur nú fengið að koma fram aftur.
Peppi mun mæta á alla velli landsins í sumar og halda uppi stuði og stemmingu.
Myndband um endurkomu hans má sjá hér að neðan.