fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433

Jordan Henderson: Þetta á ekki að gerast í Meistaradeildinni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 21:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tók á móti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 5-2 sigri heimamanna.

Það voru þeir Mohamed Salah, Sadio Mane og Roberto Firmino sem skoruðu mörk heimamanna í kvöld en Edin Dzeko og Diego Perotti skoruðu mörkin fyrir Rómverja.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool var gríðarlega svekktur með að fá á sig tvö mörk á lokamínútunum.

„Við stjórnuðum þessum leik frá A til Ö og þess vegna er gríðarlega svekkjandi að hafa gefið þeim tvö mörk á silfurfati,“ sagði fyrirliðinn.

„Þú getur ekki leyft þér að gera svona mistök í Meistaradeildinni. Að sama skapi spiluðum við mjög vel og við förum til Ítalíu með þriggja marka forskot.“

„Við verðum að vera jákvæðir, við vissum það fyrirfram að þetta yrði erfitt. Þetta verður erfitt í Róm en ég tel okkur geta klárað þetta og farið áfram í úrslitaleikinn,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var