Liverpool tók á móti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 5-2 sigri heimamanna.
Það voru þeir Mohamed Salah, Sadio Mane og Roberto Firmino sem skoruðu mörk heimamanna í kvöld en Edin Dzeko og Diego Perotti skoruðu mörkin fyrir Rómverja.
Eusebio di Francesco, stjóri Roma var gríðarlega svekktur með úrslitin í kvöld.
„Við byrjuðum leikinn vel en svo misstum við algjörlega hausinn,“ sagði stjórinn.
„Það var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að ná smá endurkomu undir lokin.“
„Það er ekkert annað í stöðunni núna en að hafa trú á verkefninu,“ sagði hann að lokum.