Manchester City ætlar sér ekki að selja John Stones, varnarmann félagsins í sumar.
Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að félagið ætlaði sér að losa sig við varnarmanninn í sumar.
Stones hefur ekki átt fast sæti í liði City að undanförnu en hann er 23 ára gamall miðvörður.
Hann kom til félagsins frá Everton, sumarið 2016 en City borgaði 47,5 milljónir punda fyrir hann á sínum tíma.
Pep Guardiola, stjóri City hefur mikla trú á miðverðinum og vill ekki missa hann, þrátt fyrir að hafa lítið notað hann á seinni hluta tímabilsins.