Ásgeir Eyþórsson hefur framlengt samning sinn við Fylki en þetta var tilkynnt í dag.
Samningurinn gildir út árið 2020 og verður hann því hjá félaginu næstu árin, í það minnsta.
Ásgeir er varnarmaður sem er fæddur árið 1993 og er hann uppalinn í félaginu.
Hann hefur spilað 109 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 6 mörk og þá á hann einnig landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Ásgeir hefur verið í námi í Bandaríkjunum frá síðasta hausti en kemur heim í lok maí og mun því taka slaginn með Fylki í Pepsi-deildinni í sumar.