fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433

Valverde íhugar að hætta með Barcelona í sumar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. apríl 2018 17:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ernesto Valverde, stjóri Barcelona íhugar nú að hætta með félagið en frá þessu greina spænskir fjölmiðlar.

Valverde tók við liðinu síðasta sumar og Luis Enrique og er á góðri leið með að vinna tvennuna á sínu fyrsta tímabili með liðið.

Barcelona vann Sevilla 5-0 um helgina í úrslitum spænska Konungsbikarsins og þá er fátt sem getur komið í veg fyrir það að liðið vinni spænsku deildina í ár.

Félagið féll hins vegar úr leik í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á dögunum eftir tap gegn Roma frá Ítalíu.

Samkvæmt miðlum á Spáni voru forráðamenn félagsins afar ósáttir með úrslitin gegn Roma og vildu sumir fjölmiðlar á Spáni meina að Valverde yrði rekinn ef félagið inni ekki Konungsbikarinn.

Valverde er sagður ósáttur með þennan fréttaflutning, sem og lítinn stuðning frá stjórnarmönnum félagsins, þrátt fyrir að vera vinna gott starf innan klúbbsins.

Hann er nú sagður íhuga framtíð sína en þeir Pep Guardiola og Luis Enrique hafa báðir sagt að það sé ekki tekið út með sældinni að stýra þessu sögufræga félagi og að álagið þar sé mikið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hartman í Val

Hartman í Val
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433
Fyrir 21 klukkutímum

Evrópudeildin: Ensku liðin bæði úr leik – Roma henti Milan úr keppni

Evrópudeildin: Ensku liðin bæði úr leik – Roma henti Milan úr keppni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
433Sport
Í gær

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur