Alexis Sanchez sóknarmaður Manchester United setur stefnuna á að vinna alla titla sem í boði eru á næstu leiktíð.
Sanchez hefur gengið í gegnum erfiða tíma eftir að hann kom til United en honum tókst að skora gegn Tottenham um helgina þegar United tryggði sér í úrslit enska bikarsins.
,,Sannleikurinn er sá að þetta hefur verið mjög erfitt fyrir mig, ég kom í risastórt félag og það breyttist allt. Núna er ég glaður og ánægður með markið á Wembley,“ sagði Sanchez.
,,Á næsta tímabili verðum við að reyna að vinna allt, þetta hefur verið erfið breyting fyrir mig. Stjórinn sagði mér að hann vildi helst ekki fá leikmenn í janúar en þetta gæfi mér tíma að venjast nýjum liðsfélögum, ég vonast til að vinna bikarinn.“
,,Sagan er sérstök hjá United, þetta er heimsfrægt félag með mikla sögu. Ég kom hingað vegna þess hversu stórt félagið er, á næsta ár vil ég vinna allt.“