Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í dag og komu Íslendingar við sögu í tveimur þeirra.
Malmö tók á móti Brommapojkarna þar sem að heimamenn fóru með sigur af hólmi, 3-1.
Markus Rosenberg skoraði tvívegis fyrir heimamenn og Soeren Rieks bætti svo við marki á 85. mínútu en Bajram Ajeti minnkaði muninn fyrir gestina.
Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði Malmö í dag en var skipt af velli á 82. mínútu.
Þá vann Norrköping 1-0 sigur á Sirius þar sem að David Moberg Karlsson skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik.
Guðmundur Þórarinsson og Jón Guðni Fjóluson voru báðir í byrjunarliði Norrköping í dag og spiluðu allan leikinn fyrir heimamenn og þá kom Arnór Sigurðsson inn á sem varamaður á 79. mínútu.
Malmö er í sjöunda sæti deildarinnar með 8 stig eftir fyrstu fimm leikina en Norrköping er í þriðja sætinu með 10 stig.