Fjölnir hefur fengið Valmir Berisha á láni frá Álasund í Noregi. Hann gildir fram í miðjan júlí.
Berisha er frá Svíþjóð en hann var áður í herbúðum Roma en lék aldrei fyrir liðið.
Berisha tókst ekki að skora fyrir Álasund í norsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Ólafur Páll Snorrason er á leið inn í sitt fyrsta tímabil sem aðalþjálfari.
Berisha skoraði eitt marka Fjölnis í 3-2 tapi gegn Fylki um helgina en Pepsi deildin hefst um helgina.
Hann er 21 árs gamall og var eitt sin vonarstjarna Svíþjóðar.
Valmir Berisha í Fjölni
Valmir er 21 árs gamall kemur á láni til 19. júlí með möguleika á framlengingu út tímabilið. Valmir opnaði markareikninginn fyrir Fjölni er hann spilaði seinni hálfleikinn í æfingaleik gegn Fylki á dögunum. #FélagiðOkkar pic.twitter.com/kmGu3IVq4Z— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) April 23, 2018