Dregið var í 32 liða úrslit Mjólkurbikarsins í dag en nú koma liðin úr Pepsi deild karla inn.
ÍBV er ríkjandi meistari en liðið vann sigur á FH í úrslitum á síðasta ári. Liðið mætir Einherja í 32 liða úrslitum.
KR heimsækir Aftureldingu og Fjölnir heimsækir Magna. FH mætir svo ÍR eða Augnablik en liðin mætast í kvöld. Það verða tveir Pepsi slagir þegar Fylkir mætir Stjörnunni og Valur tekur á móti Keflavík.
Leikirnir fara fram á mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku.
Drátturinn:
ÍBV – Einherji
Þór eða Dalvík Reynir – HK
Njarðvík – Þróttur R.
Leiknir R. – Breiðablik
Afturelding – KR
Magni – Fjölnir
Selfoss – ÍA
Hamar – Víkingur Ólafsvík
Völsungur eða Tindastóll – Fram
ÍR eða Augnablik – FH
Víðir – Grindavík
Haukar – KA
Reynir S – Víkingur R
Kári – Höttur
Stjarnan – Fylkir
Valur – Keflavík