Borussia Dortmund vill ráða Arsene Wenger til starfa en það er Telefoot sem greinir frá þessu.
Wenger tilkynnti það í vikunni að hann ætlaði sér að hætta með liðið í sumar þegar tímabilið klárast.
Frakkinn greindi sjálfur frá því að hann ætlaði sér ekki að hætta í þjálfun og það kæmi vel til greina að stýra öðru úrvalsdeildarliðið.
Það eru nokkur stórlið í Evrópuboltanum í dag sem gætu leitað sér að þjálfara í sumar en búast má við einhverjum hrókeringum í þjálfaramálum í sumar hjá stærstu félögunum.
Telefoot greinir frá því að Borussia Dortmund í Þýskalandi hafi áhuga á því að ráða Wenger en liðið hefur verið í basli á þessari leiktíð og er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.