Fjöldi leikja fór fram í norsku úrvalsdeildinni í dag og komu Íslendingar við sögu í tveimur þeirra.
Rosenborg vann 2-0 sigur á Start þar sem að þeir Tore Reginiussen og Anders Konradsen skoruðu mörk Rosenborg í leiknum.
Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Start í dag og spilaði allan leikinn á vinstri kantinum en Kristján Flóki Finnbogason kom inn á sem varamaður á 55. mínútu.
Þá gerðu Valerenga og Molde markalaust jafntefli en Samúel Kári Friðjónsson var í byrjunarliði Valerenga í dag og spilaði allan leikinn á miðjunni.
Start er á botni deildarinnar með 3 stig eftir fyrstu fimm leikina en Velerenga er í sjöunda sætinu með 10 stig.