Luzern tók á móti FC Zurich í svissnesku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Það var Claudio Lustenberger sem kom heimamönnum yfir strax á 6. mínútu en Roberto Rodriguez jafnaði metin fyrir Zurich með marki úr vítaspyrnu á 44. mínútu og staðan því 1-1 í hálfleik.
Það var svo Simon Grether sem skoraði sigurmark leiksins þegar komið var fram í uppbótartíma og lokatölur því 2-1 fyrir Luzern.
Guðlaugur Victor Palsson var í byrjunarliði Zurich í dag og spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar en liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 40 stig, fimm stigum á eftir St. Gallen sem er í fjórða sætinu.