St. Gallen tók á móti Thun í svissnesku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri gestanna.
Það var Roy Gelmi sem skoraði eina mark leiksins á 88. mínútu og lokatölur því 1-0 fyrir Thun.
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði St. Gallen í dag og spilaði allan leikinn á miðjunni.
St. Gallen er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 45 stig og hefur tveggja stiga forskot á Luzern sem er í fjórða sætinu.