Kilmarnock tók á móti Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 2-0 sigri gestanna.
Kenny McLean kom Aberdeen yfir á 37. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Shaleum Logan tvöfaldaði svo forystu gestanna á 59. mínútu og lokatölur því 2-0 fyrir Aberdeen.
Kári Árnason byrjaði á bekknum hjá Aberdeen í dag en kom inn á sem varamaður á 85. mínútu fyrir Greg Stewart.
Aberdeen er í öðru sæti deildarinnar með 65 stig og hefur þriggja stifa forskot á Rangers sem er í öðru sætinu en á leik til góða.