Levski Sofia tók á móti Vereya í búlgörsku úrslitakeppninni í dag en leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna.
Það var Hólmar Örn Eyjólfsson sem kom heimamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks og staðan því 1-0 í leikhléi.
Roman Prochazka tvöfaldaði svo forystu Levski Sofia á 57. mínútu og lokatölur því 2-0 fyrir heimamenn.
Hólmar Örn var í byrjunarliði Levski Sofia í dag og spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar.
Liðið er í fjórða sæti úrslitakeppninnar með 54 stig, einu stigi frá umspili um laust sæti í Evrópudeildinni.