WBA og Liverpool eigast nú við í ensku úrvalsdeildinni og er staðan 1-0 fyrir gestina þegar fyrri hálfleik var að ljúka.
Það var Danny Ings sem skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu og staðan því 1-0 fyrir Liverpool.
Ings er í byrjunarliðinu í dag í fjarveru Roberto Firmino sem er hvíldur en hann hefur verið afar óheppinn með meiðsli, undanfarin ár.
Þetta var hans fyrsta mark síðan í október 2015 en hann hefur tvívegis slitið krossbönd á undanförnum árum.
Framherjinn kom til Liverpool árið 2015 frá Burnley en hefur einungis komið við sögu í 21 leik með liðinu, síðan hann kom.