Dagur Dan Þórhallsson er genginn til liðs við Keflavík en þetta var tilkynnt í kvöld.
Hann kemur til félagsins frá Gent í Belgíu og skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Dagur Dan er fæddur árið 2000 og er gríðarlegt efni en hann spilaði með Haukum árið 2016.
Hann gekk til liðs við Gent í Belgíu í janúar árið 2017 en er nú kominn aftur heim.