Romelu Lukaku er kominn með nýjan umboðsmann en það er Di Marzio sem greinir frá þessu í dag.
Lukaku hefur verið á mála hjá Mino Raiola en samkvæmt ítalska miðlinum hefur hann nú sagt skilið við umboðsmanninn.
Belginn hefur nú skrifað undir samning við umboðsskrifstofu Jay Z, Roc Nation Sports.
Lukaku hefur verið á miklu flakki undanfarin ár, þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gamall.
Hann hefur spilað fyrir Chelsea, Everton og Manchester United, undanfarin fjögur ár og hefur Raiola grætt háar fjárhæðir á honum.