Arsene Wenger mun láta af störfum sem þjálfari Arsenal í sumar eftir 22 ár í starfi.
Þessi franski stjóri hefur ákveðið að kalla þetta gott.
Hann vonast til að vinna Evrópudeildina til að kveðja félagið á góðan hátt en hann vann ensku úrvalsdeildina þrisvar.
,,Ég er ánægður fyrir hönd Arsene Wenger, ég ber mikla virðingu fyrir honum,“ sagði Sir Alex Ferguson um ákvörðun hans.
,,Hann var í 22 ár í sama starfinu sem hann elskar, það segir allt um hæfileika hans og metnað. Nú þegar stjórar fá 1-2 ár í starfi er það sönnun þess hversu öflugur Wenger er.“
,,Ég er ánægður með að hann velji að greina frá þessu á þessum tímapunkti, nú er hægt að kveðja hann á frábæran hátt.“