FH er að bæta við einu púsli í lið sitt fyrir Pepsi deild karla sem hefst efir viku. Vísir.is segir frá.
FH er að fá miðjumanninn, Brand Olsen frá Randers í Danmörku.
Þar lék Olsen undir stjórn Ólafs Kristjánssonar sem gerðist svo þjálfari FH síaðsta sumar.
Olsen er 22 ára og er frá Færeyjum en hann var hjá FC áður en hann gekk í raðir Randers árið 2016.
Brandur hefur spilað 16 landsleiki fyrir Færeyjar og skorað í þeim þrjú mörk.