Ásgeir Sigurgeirsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og leikur því með liðinu næstu árin.
,,Þetta eru frábærar fréttir enda hefur Ásgeir verið hreint út sagt magnaður fyrir liðið bæði sumarið 2016 þegar liðið vann Inkasso deildina sem og 2017 þegar liðið undirstrikaði veru sína í deild þeirra bestu,“ segir á heimasíðu KA.
Ásgeir ólst upp hjá Völsungi en fór ungur að árum til Stabæk í Noregi.
Hann var sprækur síðasta sumar í Pepsi deildinin en miklar væntingar eru gerðar til KA í ár.