Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í dag og komu Íslendingar við sögu í tveimur þeirra.
Hammarby tók á móti Norrköping þar sem að heimamenn höfðu betur, 2-1.
Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þórarinsson voru báðir í byrjunarliði Norrköping í dag og spiluðu allan leikinn.
Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 77. mínútut fyrir Kalle Holmberg og þá var Alfons Sampsted ónotaður varamaður í leiknum.
Þá vann Gautaborg 1-0 sigur á Dalkurd þar sem að Gustav Engvall skoraði eina mark leiksins á 45. mínútu en Elías Már Ómarsson kom inn á sem varamaður í liði gestanna á 76. mínútu.
Norrköping er í þriðja sæti deildarinnar með 7 stig en Gautaborg er í sjötta sætinu með 6 stig eftir fyrstu fjóra leikina.