Anthony Martial, sóknarmaður Manchester United er opinn fyrir því að ganga til liðs við Arsenal en það er Le10 Sport sem greinir frá þessu.
Martial hefur ekki átt fast sæti í liði United á þessari leiktíð og hefur verið orðaður við brottför frá félaginu.
Hann hefur meðal annars verið sterklega orðaður við Juventus á Ítalíu en samkvæmt frönskum miðlum vill hann vera áfram á Englandi.
Martial hefur komið við sögu í 42 leikjum með liðinu á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað 12 mörk og lagt upp önnur 7.
Hann kom til félagsins árið 2015 frá Monaco í Frakklandi.