Beppe Marotta, framkvæmdastjóri Juventus segir að félagið hafi áhuga á því að fá þá Paul Pogba og Alvaro Morata aftur til félagsins.
Pogba hefur verið sterklega orðaður við brottför frá Manchester United að undanförnu en hann virðist ekki eiga samleið með Jose Mourinho, stjóra liðsins.
Þá hefur Morata ekki náð að heilla á sínu fyrsta tímabili á Stamford Bridge en hann hefur farið illa með mörg dauðafæri á þessari leiktíð.
„Ég hef ekki alltaf haft trú á leikmönnum sem fara og koma svo aftur en það eru alltaf undantekningar,“ sagði Marotta.
„Þeir eru tveir, frábærir atvinnumenn sem mörkuðu djúp spor í sögu félagsins en verðmiðinn á þeim gæti verið vandamál fyrir okkur,“ sagði hann að lokum.