Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
———–
Tottenham íhugar að leggja fram tilboð í Demarai Gray, sóknarmann Leicester. (ESPN)
Mauricio Pochettino hefur áhuga á Layvin Kurzawa, bakverði PSG en Chelsea hefur einnig áhuga á leikmanninum. (Mirror)
Lyon og Juventus vilja bæði fá Anthony Martial, sóknarmann Manchester United. (Sun)
Arsenal hafði líka áhuga á Martial en Arsene Wenger, stjóri liðsins hefur nú ákveðið að styrkja aðrar leikstöður á vellinum. (Evening Standard)
Maurizio Sarri, stjóri Napoli er efstur á óskalista forráðamanna Chelsea um að taka við liðinu af Antonio Conte. (Mail)
Patrick Vieira, fyrrum fyrirliði Arsenal hefur verið nefndur til sögunnar sem næsti stjóri Arsenal. (Mail)
Þá er Luis Enrique, fyrrum stjóri Barcelona einnig á óskalista Arsenal. (Tepegraph)