„Við vorum seinir í gang og þetta var frekar hægt fyrstu tíu mínúturnar en svo komumst við vel inn í þetta og skorum tvö góð mörk,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals eftir 2-1 sigur liðsins gegn ÍBV í Meistarakeppni KSÍ í dag.
Það voru þeir Patrick Pedersen og Bjarni Ólafur Eiríksson sem skoruðu mörk Valsmanna í dag en Kaj Leo í Bartalsstovu minnkaði muninn fyrir Eyjamenn í stöðunni 0-2.
„Þetta var góð æfing fyrir okkur fannst mér. Við búumst við öllu hérna í sumar, bæði að lið komi hérna og liggi til baka og svo að lið mæti hérna og pressi okkur stíft þannig að það var gott að fá þennan leik hérna í dag.“
„Kristinn er allur að koma til, hann hefur aðeins verið tæpur og við höfum bara reynt að hvíla hann og ætluðum alveg eins að nota hann í dag en við þurftum þess ekki og vonandi verður hann bara klár á næstu æfingu,“ sagði Sigurbjörn meðal annars.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=qJGozvH-ahU&w=560&h=315]