Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid er sjóðandi heitur þessa dagana og skorar iðulega þegar hann spilar.
Athletic Bilbao heimsótti Santiago Bernabeu völlinn í kvöld og allt stefndi í sigur gestanna.
Iñaki Williams kom gestunum yfir í fyrri hálfleik og þannig var staðan allt þangað til undir lok leiks.
Ronaldo jafnaði svo fyrir Real Madrid á 87 mínútu leiksins eftir sendingu frá Luka Modric.
1-1 jafntefli niðurstaðan en Real Madrid situr í þriðja sæti La Liga.