Joey Barton hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Fleetwood Town á Englandi, hann tekur við starfinu í sumar.
Barton er að fara í sitt fyrsta starf í þjálfun en hann var í fyrra settur í bann frá fótboltanum vegna veðmála.
Vandræði innan sem utan vallar hafa elt Barton allan hans feril. Yfirmaður knattspyrnumála hjá Fleetwood er Grétar Rafn Steinsson.
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni hjá Fleetwood Town,“ sagði Barton en liðið leikur í þriðju efstu deild Englands.
,,Þetta er félag sem ég hef þekkt lengi, ég á mjög gott samband við stjórnarformann félagsins.“
,,Það er stór ákvörðun að fara í sitt fyrsta starf í þjálfun og ég er ánægður með þetta tækifæri.“
BREAKING: Fleetwood Town appoint Joey Barton as new head coach on three-year deal from June 2 #ssn pic.twitter.com/GFeZFrkESQ
— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 18, 2018